Innlent

Starfsmenn Kópavogsbæjar semja

Starfsmannafélag Kópavogs hefur undirritað nýjan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna Kópavogsbæjar. Þetta er í annað skiptið í ár sem starfsmannafélagið og launanefndin ná samkomulagi en fyrri samningur þeirra var felldur í atkvæðagreiðslu félagsmanna. Nýi samningurinn verður kynntur félagsmönnum í næstu viku og greidd atkvæði um hann. Samningurinn er sagður á svipuðum nótum og samningar sem önnur starfsmannafélög hafa gert.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×