Innlent

Funda um val fulltrúa á landsfund

Heimdallur, félagsskapur ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, mun í dag funda sérstaklega um val á fulltrúum á landsfund ungra sjálfstæðismanna. Fundurinn sem hefst klukkan 16:30 og er haldinn af kröfu 50 félagsmanna í Heimdalli sem telja fram hjá sér og öðrum félagsmönnum gengið með vali stjórnar Heimdallar á fulltrúum á landsfundinn fyrr í mánuðinum. Sem fyrr eru það andstæðar fylkingar stuðningsmanna Bolla Thoroddsen formanns og andstæðinga hans sem takast á í félaginu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×