Innlent

Nokkur óhöpp vegna illviðriðs

Slæm akstursskilyrði hafa verið á Hellisheiði og í Svínahrauni í morgun vegna krapa, hálku og hvassviðris. Bifreið fór út af og valt við Litlu-kaffistofuna, en ekki er vitað til að þar hafi orðið slys á fólki. Þá fór lítil fólksflutningabifreið út af veginum rétt ofan við Kamba. Fjórir farþegar voru í bifreiðinni og slasaðist einn lítils háttar. Bílstjóri á jeppa stöðvaði í vegkantinum þar hjá til að aðstoða. Viðvörunarljós blikkuðu á jeppanum en það kom ekki í veg fyrir að bifreið var ekið aftan á hana. Áreksturinn varð það harður að bök í framsætum brotnuðu í jeppanum. Sjö manns slösuðust lítils háttar en voru fluttir til læknisskoðunar. Þá varð talsvert eignatjón í þessum óhöppum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×