Innlent

Opna tilboð í eignir og skuldir LL

Framkvæmdanefnd um einkavæðingu mun í dag opna tilboð í eignir og skuldir Lánasjóðs landbúnaðarins í viðurvist allra bjóðenda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. Ákveðið var á Alþingi í vor að selja allar eignir sjóðsins og semja um yfirtöku skulda hans, en frá 20. júní síðastliðnum hefur framkvæmdanefnd um einkavæðingu að annast undirbúning sölunnar. Í júlímánuði auglýsti framkvæmdanefnd um einkavæðingu eftir þátttöku í forvali til útboðs á eignum og skuldum sjóðsins, en í auglýsingunni voru tilgreind skilyrði þau er þátttakendur þurftu að uppfylla til að koma til greina við forval. Þann 12. ágúst tilkynnti framkvæmdanefndin svo að fimm aðilar hefðu lagt inn umsókn til þátttöku í útboðinu og þar af hefðu þrír aðilar - Íslandsbanki , Kaupþing banki og Landsbanki Íslands uppfyllt öll skilyrði nefndarinnar til frekari þátttöku. Þann 26. ágúst, að undirritaðri trúnaðaryfirlýsingu, voru þátttakendum í útboði afhent útboðsgögn þar sem meðal annars var að finna ítarlega lýsingu á fyrirkomulagi sölu. Þá hafa upplýsingafundir verið haldnir með þátttakendum og þeim veittur frekari aðgangur að gögnum í húsakynnum Lánasjóðs landbúnaðarins á Selfossi. Gert er ráð fyrir að hæsta verð ráði við mat á tilboðum, en framkvæmdanefnd um einkavæðingu áskilur sér þó rétt til að hafna öllum tilboðum, reynist þau óásættanleg. Þá gerði ferlið ráð fyrir að kaupsamningur yrði unninn jafnhliða í söluferlinu og liggur hann fyrir og hefur verið sendur þátttakendum í útboði í lokadrögum. Ekki er gert ráð fyrir frekari samningaviðræðum eftir að tilboð verða opnuð. Gert er ráð fyrir undirritun kaupsamnings í næstu viku og að greiðsla eigi sér stað við afhendingu á hinu selda, að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×