Innlent

Vill upplýsingar um sendiherra

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram fyrirspurn til Geirs H. Haarde utanríkisráðherra vegna skipana sendiherra frá árinu 1995. Sigurjón vill vita hversu margir af þeim sendiherrum sem skipaðir hafa verið hafi fengið embættið eftir störf í utanríkisþjónustunni og hversu margir hafi verið skipaðir í stöðu sendiherra eftir störf á öðrum vettvangi. Geir mun svara Sigurjóni innan skamms.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×