Innlent

Fimmtán tillögur af sextán felldar

Ef tekið er mið af landinu öllu voru 56 prósent kjósenda andvíg sameningu og fjörtíu og fjögur prósent voru fylgjandi. Niðurstaðan er í rauninni ekki flókin; Sameining var felld um allt land - nema hér - á Mið-Austurlandi, þar sem íbúar Austurbyggðar, Fjarðarbyggðar, Fáskrúðsfjarðarhrepps og Mjóafjarðarhrepps samþykktu sameiningu. Samkvæmt þessum niðurstöðum eru það 57 sveitarfélög sem sameinast ekki, af 61. Á kjörskrá voru tæplega 70 þúsund manns og nýttu liðlega 22 þúsund manns atkvæðisrétt sinn sem þýðir að kjörsókn var 32 prósent. Félagsmálaráðherra segir niðurstöðuna ekki vera vonbrigði. "Okkar hlutverk var að bera þessar tillögur fram og kynna málið í samvinnu við sveitarstjórnarmenn," segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra. "Að því hafa komið fulltrúar flestra flokka, bæði í sveitarstjórnum og á Alþingi. Ég vil ekki segja að þetta séu vonbrigði, í sumum tilfellum kemur niðurstaðan á óvart en þetta er hins vegar vilji þeirra sem þátt tóku og við að sjálfsögðu unum við það." Í stóru sveitarfélögunum var niðurstaðan afgerandi. Akureyringar felldu stórsameiningu Eyjafjarðarsvæðisins og vekur það nokkra athygli. Það voru aðeins íbúar Ólafsfjarðar og Siglufjarðar sem studdu sameiningu svæðisins. Í Árnessýslu var tillaga um sameiningu sveitarfélaga í Ölfusi og Flóa felld af íbúum í öllum sveitarfélögunum. Á Suðurnesjum höfnuðu íbúar Garðs og Sandgerðis að sameinast Reykjanesbæ, sem íbúar þar studdu. Íbúar Vatnsleysustrandar höfnuðu sameiningu við Hafnarfjörð en Hafnfirðingar sögðu hins vegar já. Á Snæfellsnesi var sameiningartillaga felld í öllum sveitarfélögum. Í Reykhólahreppi og í fjórum af sjö sveitarfélögum í Þingeyjarsýslum verður kosið aftur um sameiningartillöguna innan sex vikna. Félagsmálaráðherra segir lagasetningu um lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum ekki koma til greina í bráð. "Ég er þeirrar skoðunar að það sé útilokað fyrir sveitarfélögum að sinna sínum skyldum fullkomlega með aðeins 50 íbúa. Ég mun hins vegar ekki flytja tillögu um það að hækka þetta íbúalágmark í sveitarstjórnarlögunum í kjölfar kosninga sem þessara.Vilji fólksins í landinu liggur fyrir og það er dómurinn."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×