Innlent

Vilja tvo nýja framhaldsskóla

MYND/Vísir
Þingmenn vilja setja á fót tvo nýja framhaldsskóla. Níu af tíu þingmönnum Norðausturkjördæmis hafa lagt fram þingsályktunartillögu um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð, þar vilja þeir að boðið verði upp á nám til stúdentsprófs auk þess sem skólinn sérhæfi sig í sjávarútvegsmenntun. Þá hafa Jón Bjarnason og Kolbrún Halldórsdóttir, þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, lagt fram þingsályktunartillögu um framhaldsskóla í Mosfellsbæ sem þau vilja að taki til starfa á næsta skólaári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×