Innlent

Viðræður í næstu viku

Viðræðum um framtíð bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli verður fram haldið í Washington í næstu viku. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde utanríkisráðherra í fyrirspurnatíma á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær. Geir þakkaði Davíð Oddssyni fyrrverandi untanríkisráðherra að loftvarnir yrðu áfram í landinu. Mest um vert væri nú að komast að niðurstöðu um skiptingu kostnaðar við rekstrur flugvallarins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×