Innlent

Formaður kjörinn einróma

Ingólfur Sveinsson var einróma kjörinn formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis suður á aðalfundi félagsins á fimmtudagskvöld. Sigrún Jónsdóttir, fyrrum formaður félagsins, hafði ákveðið að gefa ekki kost á sér að þessu sinni. Ekki voru mikil átök á fundinum, eins og reiknað hafði verið með, meðal annars vegna þess að fyrr um daginn kom fráfarandi stjórn sér saman um tillögu að nýrri stjórn sem var kjörin. Fjölmenni var á fundinum, en eftir því var tekið að greinilegt var að ekki allir þeir sem skráðu sig í flokkinn nú í október mættu. Vonast er til að kjördæmisþing verði haldið fyrir miðstjórnarfund sem verður 11.-12. nóvember, og á kjördæmisþingi verði tekin formleg ákvörðun um hvort haldið verði prófkjör í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Síður er gert ráð fyrir uppstillingu á lista. Auk Ingólfs voru Guðlaugur Sverrisson, Gunnlaugur Júlíusson, Brynhildur Bergþórsdóttir, Stefán Jón Björnsson, Árni Kristinsson, Birna Sigurðardóttir, Svava Rún Sigurðardóttir og Gerður Hauksdóttir kjörin í nýja stjórn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×