Innlent

Öryggisráðsframboði ekki mótmælt

Ekki var ályktað gegn framboði Íslands í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær, þrátt fyrir tilraunir ungra sjálfstæðismanna í þá átt. Fyrrverandi formaður flokksins gerði það svo að einu af sínum síðustu verkum að hvetja til að róttæk ályktun um afnám ríkisstyrkja í landbúnaði yrði felld. Fyrir fundinum lágu drög að ályktun um utanríkismál þar sem ekki var vikið beinum orðum að umdeildu framboði Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna heldur sagt að Íslendingar hefðu hingað til ekki skorast undan ábyrgð í samfélagi þjóðanna og því sé mikilvægt að slíku starfi sé haldið áfram. Fyrir fund þótti einsýnt að þessari málsgrein yrði breytt enda Ungir Sjálfstæðismenn nýbúnir að álykta gegn framboði Íslands til Öryggisráðsins og nýkjörinn formaður búinn að lýsa því yfir að hans fólk myndi berjast fyrir því að samskonar ályktun gegn framboðinu yrði samþykkt. Eftir talsverðar umræður innan nefndarinnar náðist þó sátt um málamiðlunarályktun þar sem bætt var inn setningu þar sem sagt var að hér eftir sem hingað til þyrfti að gæta aðhalds og ráðdeildar í fjárútlátum til utanríkismála og gæta fyllsta hófs í kostnaði við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Tillögu um að skýra þurfi betur stefnu Íslands og væntanleg markmið innan öryggisráðsins var vísað til miðstjórnar. Athygli vakti að tillaga nokkurra ungra sjálfstæðismanna um afnám hvers kyns ríkisstyrkja og tollamúra í landbúnaði var felld eftir að Davíð Oddsson, fráfarandi formaður flokksins, sté í ræðustól og hvatti menn til að stíga varlega til jarðar í þeim efnum. Tillagan sem kom seint fram var svo felld. Ungir Sjálfstæðismenn voru annars sáttir við sinn hlut á landsfundinum að sögn formanns þeirra, Borgars Þórs Einarssonar, sem segir tillögur ungliðanna hafa náð fram að mestu leyti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×