Innlent

Jafnréttissjóður settur á fót

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að setja á fót rannsóknasjóð sem á að fjármagna kynjarannsóknir. Sjóðurinn nefnist Jafnréttissjóður og verður settur á fót á kvennafrídaginn næsta mánudag. Ríkisstjórnin leggur tíu milljónir króna til sjóðsins. Áhersla verður lögð á rannsóknir á stöðu kvenna á vinnumarkaði og almennar rannsóknir á áhrifum gildandi laga, svo sem laga um fæðingarorlofssjóð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×