Innlent

Þorgerður Katrín ekki hrifin af VG

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir stefnu Vinstri grænna sem og hinna stjórnarandstöðuflokkana arfavitlausa. Það sé stefna stjórnarflokkanna hins vegar ekki og það sjái hver sem vilji. Þorgerður Katrín var ekki hrifin af markmiðum og stefnu Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri Grænna en landsfundur flokksins var haldinn í gær. Þorgerður sagði Steingrím þó alltaf samkvæman sjálfum sér. Þá sagði Þorgerður að þó gott væri að kvenpeningurinn gleymdist ekki innan flokksins, væri stefnan femínistaflokkur, kannski ekki besta leiðin. Þorgerður útilokaði ekki að Sjálfstæðisflokkurinn færi í samstarf við annan flokk, en sagði þó Framsóknarflokkinn besta kostinn í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×