Innlent

Stefán Jóhann sækist eftir 3. sæti hjá Samfylkingunni

Stefán Jóhann Stefánsson, sem verið hefur í borgarstjórnarflokki Reykjavíkurlistans á yfirstandandi kjörtímabili, sækist eftir þriðja sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninga, en prófkjörið fer fram í febrúar. Stefán Jóhann, sem er 47 ára, er fulltrúi flokksins í velferðarráði og umhverfisráði borgarinnar, situr í stjórn hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar, hefur setið í

jafnréttisnefnd og var formaður stjórnar Innkaupastofnunar Reykjavíkur og formaður stjórnar Vélamiðstöðvar ehf.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×