Innlent

Ekki stendur til að selja RÚV

MYND/GVA

Halldór Ásgrímsson segir að ekki standi til að selja Ríkisútvarpið þótt nú sé verið að endurskoða rekstrarform stofnunarinnar í tengslum við ný lög um RÚV. Hann vísar fullyrðingum Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, þess efnis að boðuð formbreyting á rekstri RÚV sé dulbúin einkavæðing alfarið á bug. Kristinn hefur lýst því yfir að landsfundarsamþykk Framsóknarflokksins taki af allan vafa um að þingflokknum sé ekki heimilt að samþykkja einkahlutafélagavæðingu RÚV en því vísar Halldór á bug, en ítrekar þó að frumvarp um RÚV sé enn í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×