Innlent

Enginn ágreiningur milli ASÍ og SA um lög fyrir starfsmannaleigur

MYND/Valgarður
Grétar Þorsteinsson , forseti ASÍ , segir það miður að nefnd um starfsemi starfsmannaleiga hafi starfað í rúmt ár án niðurstöðu. Hann hafnar því þó að ágreiningur sé milli ASÍ og Samtaka Atvinnulífs í nefndinni. Félagsmálaráðherra hefur lofað lögum fyrir jól.

Árni Magnússon félagsmálaráðherra lýsti því yfir í síðustu viku að lög um starfsemi starfsmannaleiga væru væntanleg fyrir jól. Fyrir um einu og hálfu ári skipaði Árni hins vegar nefnd í kjölfar umræðna á Alþingi um aðbúnað og kjör erlendra verkamanna á Kárahnjúkum sem skoða átti mögulega lagasetningu. Í henni sitja, auk fulltrúa ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins, fulltrúi félagsmálaráðherra. Sú nefnd hefur enn ekki skilað niðurstöðu né hafa forystumenn Alþýðusambandsins séð tillögur hennar.

Grétar Þorsteinsson formaður ASÍ kveðst ekki geta skýrt hvers vegna nefndin hafi ekki skilað niðurstöðu fyrr enda hafi vandræði tengd starfsmannaleigum tekið drjúgan tíma hjá ASÍ og aðildarfélaga nú í nokkur ár. Hann segir vinnuna hafa tekið alltof langan tíma og hann viti ekki hvernig standi á því. Hann kannist ekki við að deilur séu á milli ASÍ og SA um mikilvægi þess að lög verði sett um starfsemi starfsmannaleigna. Aðspurður hvort það sé þá fulltrúi ráðuneytisins sem hafi dregið lappirnar segir Grétar að hann ætli ekkert að fullyrða um það. Ráðuneytið verði að svara því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×