Innlent

Ómar Stefánsson leiðir í prófkjöri Framsóknarmanna

Ómar Stefánsson leiðir í prófkjöri Framsóknarmanna í Kópavogi þegar búið er að telja 720 atkvæði af tvöþúsund. Samúel Örn Erlingsson kemur næstur Ómari í baráttunni um efsta sætið og Una María Óskarsdóttir kemur næst honum. Ómar hefur fengið 202 atkvæði í fyrsta sæti, Samúel 178 og Una María 131. Samúel hefur hlotið 266 atkvæði í 1.-2. sæti, Linda Björk 334 í 1.-3. sæti og Una María 381 atkvæði í 1.-4. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×