Innlent

Íbúðalánasjóður hækki vextina líka

Guði sé lof fyrir vaxtahækkunina, segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra í pistli á heimasíðu sinni og vísar þar til þess að Landsbanki Íslands hækkaði vexti á íbúðalánum síðasta föstudag.

Einar segir ákvörðunina sýna ábyrgð og framsýni bankastjórnar og kveðst vona að Íbúðalánasjóður fylgi í kjölfarið og hækki vexti sína. Sjávarútvegsráðherra segir að vaxtahækkun Landsbankans kunni að verða til þess að stjórn Seðlabankans telji sig hafa minni ástæðu en ella til að hækka stýrivexti sína. Þá geti hátt gengi krónunnar, eða ofurgengið eins og sjávarútvegsráðherra kallar það, farið að ganga til baka. Útgerðarmenn og aðrir forsvarsmenn útflutningsfyrirtækja hafa kvartað sáran undan háu gengi krónunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×