Innlent

Greiddu fyrir Brim með leigu veiðiheimilda

Harðbakur, einn togara útgerðarfélagsins Brims.
Harðbakur, einn togara útgerðarfélagsins Brims. MYND/KK
Kaup Guðmundar Kristjánsson útgerðarmanns á útgerðarfélaginu Brimi í ársbyrjun 2004 voru fjármögnuð með því að leigja og selja burt veiðiheimildir í sameign þjóðarinnar segir Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingar.

16 þúsund þorskígildistonn voru flutt frá Akureyri síðustu tvo fiskveiðiár og tíu þúsund frá Vestmannaeyjum. Á sama tíma leigðu útgerðir á Grundarfirði og í Garði rúm 5.000 tonn til sín að því er fram kemur í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingar.

Samherji leigði mestar veiðiheimildir frá sér, tæp tíu þúsund tonn, en næst komu Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, Brim, HB Grandi og Skinney Þinganes. Nesfiskur fékk mestan kvóta til sín, tæp fimm þúsund tonn, en næst komu Fiskvinnslan Kambur og Sæból.

Jóhann hefur áður lagt fram fyrirspurnir um tilfærslu veiðiheimilda milli útgerða og sveitarfélaga. "Tilgangurinn hefur verið sá að sýna fram á hið raunverulega veiðigjald, hvaða fyrirtæki, hvaða byggðir eru að greiða það," segir Jóhann og segir flutning veiðiheimilda sýna hvaða fyrirtæki þurfa að greiða öðrum útvegsmönnum fyrir aðgang að auðlindinni og hvaða útgerðir hafi tekjur af að leigja eða selja frá sér veiðiheimildir. "Veiðigjaldið sem útgerðarmenn kvarta undan er túkall á þorskkílóið en við erum að tala um hundraðkall eða meira á þorskkílóið þegar þeir eru að selja aðgang að auðlindunum."

Jóhann segir jafnframt augljóst af svari sjávarútvegsráðherra að kaupverðið á Brim hafi verið greitt með sölu og leigu veiðiheimilda. Hann vísar til þess að Brim, Útgerðarfélagið Tjaldur og K G fiskverkun, sem öll eru í sömu eigu, framseldu tæplega átta þúsund þorskígildistonna veiðiheimildir á síðustu tveimur fiskvieiðiárum.

Guðmundur Kristjánsson, segir þetta ekki rétt hjá Jóhanni. Félög hans hafi ekki leigt frá sér veiðiheimildir til að borga fyrir Brim. Sum ár veiði félög í hans mikið og leigi þá til sín veiðiheimildir, önnur ár leigi þau frá sér heimildir og veiði minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×