Innlent

Valgerður tekur ekki sæti á listanum

MYND/Stefán

Valgerður Sigurðardóttir, sem sóttist eftir fyrsta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í gær en tókst ekki ætlunarverk sitt, ætlar ekki að taka sæti á listanum. Hún hlaut 791 atkvæði í 1.-2. sætið en keppinautur Valgerðar um fyrsta sætið, Haraldur Þór Ólason, sigraði með 921 atkvæði. Alls tóku 1856 þátt í prófkjörinu, eða 55 prósent þeirra sem voru á kjörskrá.

Nánar verður fjallað um málið í hádegisfréttum NFS klukkan 12.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×