Innlent

Marsibil sækist eftir öðru sæti á lista Framsóknar í Reykjavík

Marsibil Jóna Sæmundsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Marsibil hefur verið varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins innan R-listans á þessu kjörtímabili. Hún hefur einnigsetið í stjórn ungra framsóknarmanna í Reykjavík norður, stjórn Kjördæmasambandins í Reykjavík norður og miðstjórn flokksins síðan 2001.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×