Innlent

Björn Friðrik ráðinn aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra

Björn Friðrik Brynjólfsson, fréttamaður á RÚV, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Einars Kristins Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra og hefur störf 1. desember. Björn Friðrik útskrifaðist úr stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1997 og hagnýtri fjölmiðlun ári síðar. Hann hefur lengst af verið íþróttafréttamaður hjá RÚV og stjórnandi þátta bæði á Rás 1 og Rás 2 frá 1999.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×