Innlent

Ekki aðgengi fyrir alla í norrænum þinghúsum

Úr þingsal Alþingis.
Úr þingsal Alþingis.

Ekki er aðgengi fyrir alla í norrænu þinghúsunum samkvæmt könnun sem sem norræna samstarfsnefndin um málefni fatlaðra gerði á aðgengismálum. Í könnuninni kemur fram að nær ómögulegt er fyrir þá sem eru í hjólastól að flytja ræðu í ræðustólum húsanna og þá er aðgengi fatlaðra að vefupplýsingum ekki nægilega gott. Á ráðstefnu í Kaupmannahöfn á morgun verður kynnt hve aðgengileg þinghúsin á Norðurlöndum eru fyrir alla og þá mun samstarfsnefndin leggja fram tillögur um hvar helst þurfi að taka til hendinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×