Innlent

Varast ber að hagga við grundvallarþáttum ÖSE

MYND/Vísir

Varast ber að hagga við grundvallarþáttum sem ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, byggist á, og þá einkum sjálfstæði hennar á sviði mannréttindamála. Þetta sagði Geir H. Haarde utanríkisráðherra í ræðu sinni á fundi utanríkisráðherra aðildarríkja ÖSE í Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, í dag. Þá hvatti utanríkisráðherrann rússnesk stjórnvöld til að kalla herlið sitt frá Georgíu og Moldavíu, í samræmi við skuldbingar þar um, en deilur ríkjanna hafa verið til umræðu innan ÖSE.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×