Innlent

Aðstandendur samkynhneigðra skora á Alþingi

MYND/Stefán
FAS, Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, afhentu forseta Alþingis áskorun í dag þar sem skorað er á þingið að breyta hjúskaparlögum nr. 31/1993 á þann veg að þau þjóni bæði gagnkynhneigðu og samkynhneigðu fólki. Í áskoruninni segir að með því einu að breyta gildissviði laganna í 1. gr., og setja að lögin gildi um hjúskap tveggja einstaklinga en ekki karls og konu eins og nú er, og hnika til orðalagi hér og þar í lögunum, næðist þetta fram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×