Innlent

Prófkjör hjá sjálfstæðismönnum á Akureyri í febrúar

Frá Akureyri
Frá Akureyri MYND/Vísir

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri ákvað á fundi sínum í kvöld að efna til prófkjörs vegna vals á framboðslista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Prófkjörið verður haldið 11. febrúar næstkomandi.Frestur til að tilkynna þátttöku rennur út 16. janúar.

Þeir sem rétt hafa til að kjósa eru fullgildir meðlimir í Sjálfstæðisfélögum í sveitarfélaginu, sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri á prófkjörsdegi. Einnig þeir stuðningsmenn flokksins sem munu eiga kosningarétt í sveitarfélaginu við kosningarnar og undirritað hafa inntökubeiðni í Sjálfstæðisfélag í sveitarfélaginu fyrir lok kjörfundar.

 

Kjörnefnd mun á næstunni ákveða nánari tilhögun prófkjörsins í samræmi við gildandi prófkjörsreglur.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×