Innlent

Launanefnd sveitarfélaga samþykkti tillöguna

Launanefnd sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum í gær tillögu formanns nefndarinnar, Gunnars Rafns Sigurbjörnssonar, um að boða til launaráðstefnu 20. janúar næstkomandi. Boðað er til ráðstefnunnar meðal annars vegna þeirra deilna sem upp hafa komið vegna nýgerðra kjarasamninga Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Formanni launanefndarinnar og sviðsstjóra kjarasviðs hefur verið falið fyrir ráðstefnuna að skoða þá samninga sem launanefndin hefur gert og bera saman við aðra samninga á markaði, þar á meðal hinn nýgerða samning Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×