Innlent

Enn vantar í 58 stöðugildi á leikskólum borgarinnar

MYND/GVA

Enn vantar starfsfólk í tæp 58 stöðugildi á leikskólum borgarinnar samkvæmt nýjum tölum frá menntasviði borgarinnar. Mestur er skorturinn á starfsfólki í Grafarvogi og Kjalarnesi, en þar vantar 17 starfsmenn, og í Árbæ og Grafarholti vantar fólk í ellefu og hálft stöðugildi. Staðan hefur þó batnað töluvert frá því 22. september en þá vantaði fólk í 106 stöðugildi. Alls bíða 33 börn eftir leikskólavist og hefur fækkað um þrjú frá því að tölur voru síðast birtar fyrir tveimur vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×