Innlent

Geti kennt sjálfum sér um að vera lítið á sviðinu

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna. MYND/vilhelm

Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins í borginni hafa lítið verið á sviðinu og það er þeim sjálfum að kenna, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, en ný skoðanakönnun sýnir að fylgi flokksins í borginni mælist nú 55,7 prósent. Borgarstjóri á von á að kannanir í febrúar gefi skýrari mynd af stöðu floikkanna.

Í nýrri skoðanakönnum sem Gallup gerði fyrir Björn Inga Hrafnsson, sem sækist eftir því að leiða Framsóknarflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum, kemur fram að Sjálfstæðisflokkurinn nýtur yfirburðafylgis í borginni og næði meirihluta ef kosið yrði nú. Samfylkingin reynist varla hálfdrættingur á við flokkinn en hún fengi 25,3 prósent. Þá fengju vinstri - grænir 12,3 prósent og Framsóknarflokkurinn 4,8 prósent og næði ekki inn manni frekar en frjálslyndir.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmssonm, oddviti sjálfstæðismanna, er þakkklátur fyrir stuðninginn. Hann endurspegli stuðning við störf sjálfstæðismanna í borgarstjórn og mjög ríka ósk borgarbúa um breytingar á stjórn borgarinnar.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir tölurnar ekki nógu góðar fyrir Samfylkinguna en hún á von á breytingu innan tveggja mánaða. Hún telur að mikið fylgi við Sjálfstæðisflokkinn endurspegli að einhverju leyti prófkjörið og alla þá umræðu sem hafi verið í kringum flokkinn. Önnur framboð séu að koma fram eitt af öðru, Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin verði með prófkjör fljótlega.

Vilhjálmur segir anstæðinga Sjálfstæðisflokksins lítið vera á sviðinu og það sé þeim sjálfum að kenna. Þeir hafi skapað það tómarúm sem Dagur B. Eggertsson tali um.

Dagur B. Eggertsson tilkynnti í gær að hann hygðist taka þátt í slagnum um fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Steinunni líst vel á takast á við hann. Þau hafi þekkst lengi og séu gamlir samherjar úr sigurliði Röskvu úr Háskóla Íslands. Hún hlakki til og hver svo sem niðurstaðan verði verði engir eftirmálar af því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×