Innlent

Sjúkraflugvél áfram á Ísafirði

Frá Ísafirði.
Frá Ísafirði.

Sjúkraflugvél verður áfram staðsett á Ísafirði en til stóð að hún myndi hafa aðstöðu á Akureyri frá og með áramótum. Eftir því sem fram kemur á fréttavef Bæjarins besta hafði fulltrúi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis samband við Halldór Halldórsson bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar í gær og staðfesti þetta. Menn vestra hafa verið uggandi yfir brotthvarfi sjúkraflugvélarinnar, ekki síst þar sem Þingeyrarflugvöllur verður lokaður fram á næsta sumar. Staðsetning sjúkraflugvélarinnar verður endurskoðuð næsta sumar þegar framkvæmdum við Þingeyrarflugvöll verður lokið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×