Innlent

Umhverfisráðherra staðfestir breytingar á svæðisskipulagi

MYND/GVA

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur staðfest breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015 sem samvinnunefnd miðhálendis samþykkti á fundi sínum þann 12. ágúst 2005. Breytingarnar varða m.a. jarðvarmavirkjun við Hágöngur og lagningu háspennulínu frá þeirri virkjun og breytingu skálasvæðis við Kerlingarfjöll í hálendismiðstöð vegna ferðaþjónustu. Umhverfisráðherra hefur hins vegar synjað staðfestingu á þeim hluta svæðisskipulagstillögunnar sem lýtur að Norðlingaölduveitu. Ákvörðun umhverfisráðherra er í samræmi við tillögu Skipulagsstofnunar frá 25. október 2005.

Fram kemur í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu að þar sem annmarkar voru á meðferð svæðisskipulagstillögunnar h afi ráðherra ekki lagaheimild til þess að staðfesta hana með þeim hætti sem samvinnunefnd miðhálendis samþykkti. Í rökstuðningi fyrir niðurstöðu umhverfisráðherra kemur fram að hin formlega málsmeðferð samvinnunefndar miðhálendisins um breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015 fyrir svæðið sunnan Hofsjökuls sé ekki í samræmi við skipulags- og byggingarlög. Sá annmarki var á afgreiðslu nefndarinnar að hún breytti auglýstri tilögu sinni í grundvallaratriðum án þess að auglýsa hana að nýju áður en hún var tekin til efnisafgreiðslu .

Ákvæði laga um raforkuver skylda ekki samvinnunefnd miðhálendis til þess að taka Norðlingaölduveitu upp í svæðisskipulag miðhálendis samkvæmt úrskurði setts umhverfisráðherra frá 30. janúar 2003. Ákvæðið takmarkar þó þá raunhæfu valkosti sem nefndin hefur þegar landnýting er ákveðin fyrir svæðið sunnan Hofsjökuls vegna veitunnar.

Ákvörðun ráðherra felur því í sér að skipulagi þess svæðis á miðhálendinu sem lýtur að Norðlingaölduveitu hefur ekki verið breytt og gildir því áfram það skipulag sem gilt hefur á því svæði. Það skipulag gerir ekki kleift að ráðast í framkvæmd Norðlingaölduveitu í samræmi við úrskurð setts umhverfisráðherra frá 30. janúar 2003 og er því framhald þess máls í höndum samvinnunefndar miðhálendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×