Sálumessur í Hallgrímskirkju 5. nóvember 2006 16:00 Kórinn Schola cantorum og stjórnandi hans Hörður Áskelsson. Á allra heilagrar messu minnast menn látinna vina og ættingja og í dag verða haldnir hátíðlegir tónleikar í Hallgrímskirkju.
Allra heilagramessa er í dag og að því tilefni gengst Listvinafélag Hallgrímskirkju fyrir sálumessutónleikum. Að þessu sinni fær Listvinafélagið kammerkórinn Schola cantorum og Alþjóðlegu barokksveitina í Haag til liðs við sig. Flutt verða verkin „Messe de requiem“ og „De profundis“ eftir franska tónskáldið André Campra en hvorugt þessara verka hefur verið flutt hér á landi áður. Schola cantorum hefur í gegnum tíðina flutt ýmis verk barokkmeistaranna við góðan orðstír. Að þessu sinni skipa kórinn tíu söngvarar en einsöngvarar hans verða Guðrún Edda Gunnarsdóttir, Jóhanna Halldórsdóttir, Kirsten Erna Blöndal, Hrólfur Sæmundsson, Benedikt Ingólfsson og Þorbjörn Rúnarsson. Alþjóðlega barokksveitin í Haag er íslenskum tónleikagestum að góðu kunn en sveitin hefur undanfarin misseri starfað með kórum Hallgrímskirkju við flutning á tveimur stórvirkjum Jóhanns Sebastíans Bachs; Matteusarpassíunni og Jólaóratóríunni tvenn síðustu jól. Hljómsveitin er skipuð ungu tónlistarfólki víða að úr heiminum, þar á meðal Íslendingum, sem hefur sérmenntað sig í flutningi gamallar tónlistar á upprunaleg hljóðfæri og hlotið mikið lof fyrir leik sinn. Hefð hefur skapast fyrir því að flytja sálumessu í Hallgrímskirkju á allra heilagra messu. Margir leggja leið sína í kirkjuna á þessum degi til að minnast látinna ástvina sinna á hátíðlegan hátt og hefur undanfarin ár verið uppselt á sálumessutónleika Listvinafélagsins. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Tónleikarnir hefjast kl. 17.
Menning Mest lesið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Fleiri fréttir Sigur Rós í Handmaids Tale Einn heitasti plötusnúður í heimi á leið til landsins Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Kærleiksbomba frá GusGus Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Sjá meira