Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Lovísa Arnardóttir skrifar 17. september 2026 12:31 Norsk-írska söngkonan Emmy tók þátt í Eurovision fyrir Írland árið 2025 í Basel. Írar hafa ekki tekið þátt síðan þá. Myndin er tekin í aðdraganda keppninnar árið 2025 og má sjá palestínska fánann í bakgrunni. Vísir/EPA Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, hefur staðfest að Írland muni ekki taka þátt í Eurovision í ár og að þau muni heldur ekki sýna keppnina á sjónvarpsstöð sinni. Írar tóku ekki þátt í Eurovision í fyrra eins og Ísland, Holland og Spánn.
Í frétt RTÉ segir að í yfirlýsingu hafi komið fram að afstaða RTÉ sé óbreytt og vísað til stöðunnar á Gasa og mannúðarkrísunnar sem enn er í gangi þar vegna stríðs Ísraela á Gasa. Þá segir einnig í yfirlýsingunni að RTÉ hafi þungar áhyggjur af því að enn sé alþjóðlegum fjölmiðlum hindraður aðgangur að svæðinu. Greint var frá því fyrr í þessum mánuði að stjórn Ríkisútvarpsins hafi ekki tekið neina ákvörðun um þátttöku Íslands í keppninni og að líklega muni það ekki liggja fyrir fyrr en í desember. Darina Nikolaeva Yotova, eða Dara, sigraði keppnina í vor með laginu Bangaranga sem haldin var í Vín í Austurríki. Keppni næsta árs verður í Burgas í Búlgaríu frá 11. til 13. maí. Verði saknað Haft er eftir Martin Green, framkvæmdastjóra keppninnar, í frétt RTÉ að Eurovision þyki miður að þau ætli ekki að taka þátt en að þau virði ákvörðunina. „Þau eru enn mikils metinn meðlimur fjölskyldunnar og verður saknað,“ bætti hann við og að EBU, samband evrópskra sjónvarpsstöðva, myndi halda áfram að vera í samtali við RTÉ og að þau voni að þau snúi aftur í keppnina síðar. Írar, eins og aðrar þjóðir sem ekki voru með í fyrra, tóku þá ákvörðun eftir að EBU tilkynnti að Ísraelum yrði leyft að taka þátt en hávært ákall var frá þessum þjóðum um að þeim yrði vísað úr keppni líkt og Rússum var við innrás í Úkraínu. Hollendingar hafa áður tilkynnt að þeir ætli ekki að taka þátt í keppninni á næsta ári. Ekki er búið að tilkynna hverjir taka þátt. EBU tilkynnti fyrr á þessu ári að nýjar reglur muni vera í gildi í Eurovision-keppninni á næsta ári sem kveða meðal annars á um að flytjendur þurfi að vera eldri en átján ára og að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu. Írar tóku fyrst þátt í Eurovision árið 1965 og hafa unnið sjö sinnum, síðast árið 1996 þegar Eimear Quinn sigraði með lagið The Voice.
Eurovision Írland Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Holland Spánn Eurovision 2027 Tengdar fréttir Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Eurovision, evrópska söngvakeppnin, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara sigraði keppnina með lagið Bangaranga í maí í Vínarborg í maí á þessu ári. 13. ágúst 2026 09:13 Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Ísraelska hárvörufyrirtækið Moroccanoil hefur tekið ákvörðun um að framlengja ekki samning sinn við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Samstarf keppninnar og ísraelska fyrirtækisins hefur verið umdeilt í gegnum tíðina, rétt eins og þátttaka Ísraels í keppninni. 13. ágúst 2026 18:03 Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira
Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Eurovision, evrópska söngvakeppnin, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara sigraði keppnina með lagið Bangaranga í maí í Vínarborg í maí á þessu ári. 13. ágúst 2026 09:13
Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Ísraelska hárvörufyrirtækið Moroccanoil hefur tekið ákvörðun um að framlengja ekki samning sinn við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Samstarf keppninnar og ísraelska fyrirtækisins hefur verið umdeilt í gegnum tíðina, rétt eins og þátttaka Ísraels í keppninni. 13. ágúst 2026 18:03