Sextán sveitir keppa 14. nóvember 2006 15:00 Finnegan Hljómsveitin Finnegan vann Global Battle of the Bands hér á landi í fyrra.
Sextán hljómsveitir hafa skráð sig í hina alþjóðlegu hljómsveitarkeppni Global Battle of the Bands sem verður haldin dagana 15.-24. nóvember í Hellinum, tónleikasal Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar (TÞM). Hljómsveitirnar hafa allar sínar ólíku stefnur, allt frá melódísku poppi upp í hart rokk og verður tónlistarflutningurinn því fjölbreyttur. Einnig er von á gestahljómsveitum til að halda uppi stemningunni á meðan dómnefnd fer yfir úrslit hvers kvölds. Keppt verður fjögur kvöld, 15., 16., 22. og 23. nóvember, og verður valin ein hljómsveit á hverju kvöldi til þess að keppa til úrslita hérlendis föstudaginn 24. nóvember. Sigurhljómsveit úrslitakvöldsins mun síðan keppa fyrir hönd Íslands í London Astoria í desember. Keppnin er árlegur viðburður og hefur verið haldin síðustu tvö ár með góðum árangri. Íslensku hljómsveitirnar Lights on the Highway og Finnegan, sem báru sigur úr býtum hérlendis árin 2004 og 2005, hafa hlotið verðskuldaða athygli í kjölfar þátttökunnar. Hér er því um gott tækifæri að ræða fyrir íslenskt tónlistarlíf á innlendum sem erlendum grundvelli. Öll kvöldin hefjast kl. 20 og kostar 600 krónur inn á hvert kvöld, en kaupa má aðgangspassa á öll fimm kvöldin fyrir 1.600 krónur. Tónleikarnir eru opnir öllum aldurshópum. Miðasalan fer fram á www.tonleikar.is. Miðar verða einnig seldir við innganginn hvert kvöld fyrir sig. Nánari upplýsingar um atburðinn má finna á tonleikar.is.
Menning Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Drengurinn sem dó Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Alaska og Birnir sigursæl Menning Alan Carr á Íslandi Lífið Fleiri fréttir „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira