Sirrí með þrjár tilnefningar í Gullkindinni 17. nóvember 2006 11:15 Andri og Búi í Capone.
Morgunþátturinn Capone stendur að venju fyrir verðlaunaafhendingunni Gullkindinni sem heiðrar allt það versta í afþreyingariðnaði Íslands og voru tilnefningarnar tilkynntar nú í morgun. Að venju getur þjóðin kosið á vefsíðunni XFM.is en um er að ræða þrettán flokka. Meðal þeirra sjónvarpsþátta sem fá tilnefningu eru Örlagastundin með Sirrý, Í sjöunda himni með Hemma Gunn og upphitunarþáttur Skjás eins fyrir Rock Star: Supernova. Þeir sem tilnefndir eru fyrir verstu frammistöðuna í sjónvarpi eru meðal annars allir stjórnendurnir í Innliti/útliti en sá þáttur fær aðra tilnefningu; innslag Arnars Gauta í íbúð Ásgeirs Kolbeins. Þá eru þau Heimir Karlsson, Sirrý og Dóri DNA einnig tilnefnd fyrir frammistöðu sína á skjánum. Baltasar Kormákur hlýtur tvær tilnefningar því bæði Mýrin og A Little Trip to Heaven berjast við Bjólfskviðu sem „Versta myndin". Hiphop-hljómsveitin Snooze fær þrjár tilnefningar í flokknum „Versta lagið" og íslenska landsliðið í knattspyrnu, bréf Róberts Marshall „Kæri Jón", Ríkislögreglustjóri, NFS og Silvía Nótt í Evróvisjón eru öll tilnefnd sem „Klúður ársins". Gullkindin verður veitt við hátíðlega athöfn á fimmtudaginn eftir viku og þá verður jafnframt tilkynnt hver hljóti heiðursverðlaunin.
Rock Star Supernova Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Fleiri fréttir „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Jói Fel málar með puttunum Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu