Innlent

Ekki búið að taka afstöðu til beiðni Neytendasamtaka

MYND/Sigurður Jökull

Ekki er búið að taka afstöðu til beiðni formanns Neytendasamtakanna um að samtökin fái aðild að nefnd sem forsætisráðherra hyggst skipa til að kanna ástæður hás matvælaverðs og leiðir til að lækka það. Formaður Neytendasamtakanna skrifaði forsætisráðherra bréf þar að lútandi en ráðherra sagði í áramótaávarpi sínu að í nefndinni yrðu fulltrúar stjórnvalda, bænda og aðila vinnumarkaðarins. Í forsætisráðuneytinu fengust þær upplýsingar í dag að verið væri að skoða málið og að enn væri unnið að því að skipa fulltrúa í nefndina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×