FL Group tapar á öðrum ársfjórðungi 14. ágúst 2006 17:02 Merki FL Group.
FL Group hagnaðist um rúma 5,7 milljarða króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæpum 3,8 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta nam 6,3 milljörðum króna en hann var rúmir 2,3 milljarðar króna fyrir ári. FL Group tapaði 118 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, sem er nokkur viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar félagið skilaði rúmlega 1,9 milljarða króna hagnaði. Í tilkynningu frá FL Group kemur fram að afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta á fyrri helmingi ársins hafi numið 8,1 milljarði króna en hún var 2,6 milljarðar á sama tíma fyrir ári. Haft er eftir Hannesi Smárasyni, forstjóra FL Group, að hann er ánægður með að geta kynnt góða afkomu á fyrri helmingi ársins, sérstaklega í ljósi afar mikils óróleika á fjármálamörkuðum á öðrum ársfjórðungi. Hafi gengi hlutabréfa almennt lækkað um 5 til 10 prósent á tímabilinu. „Icelandair Group og dótturfélög þess eru að skila bestu afkomu í sögu félagsins sem endurspeglar áherslu okkar á arðsemi. Viðsnúningur á rekstri Sterling gengur í samræmi við áætlanir enda þótt sögulega hátt olíuverð og aukin samkeppni haldi áfram að vera áskorun," segir hann í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip Viðskipti innlent Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Sjá meira