Landsvirkjun semur við TM Software 15. ágúst 2006 11:04 Frá undirritun samningsins.
Landsvirkjun hefur gert samning við TM Software um uppsetningu símstöðva og búnaðar sem byggist á nýjustu IP-símatækni fyrir skrifstofu Landsvirkjunar á Akureyri, í Laxárstöð og Fljótsdalsstöð, Kárahnjúkum. Í verkinu felst meðal annars forritun, uppsetning, prófanir og kennsla á IP-símstöðvarnar og símabúnaðinn sem þeim tilheyrir. Í tilkynningu frá TM Software kemur fram að IP-símatæknin feli í sér að öll samskipti fari fram í gegnum Netið hvort heldur notaðir eru hefðbundnir borðsímar, farsímar eða tölvur. Það eina sem þurfi er nettenging og skipti ekki máli hvort starfsmaðurinn sem ná þarf í er staddur í Kárahnjúkum eða í Reykjavík. Haft er eftir Óskari H. Valtýssyni, fjarskiptastjóra Landsvirkjunar, að það sé mikið framfaraskref fyrir Landsvirkjun að taka IP-tæknina í sína þjónustu. „Þetta gerir okkur mun auðveldara að tengja saman starfsstöðvar Landsvirkjunar auk þess sem símakostnaður mun lækka og sveigjanleiki aukast. Nú er það Netið sem er samtengipunkturinn í stað símalína áður," segir Óskar. „TM Software hefur mikla reynslu í innleiðingu, rekstri og þjónustu á síma- og netkerfum og meðal viðskiptavina okkar eru mörg stærstu fyrirtæki landsins. Landsvirkjun er mjög ánægjuleg viðbót við núverandi viðskiptahóp," segir Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri hjá TM Software.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Viðskipti innlent Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip Viðskipti innlent Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Magnús hættir hjá Orkusölunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Sjá meira