Hagnaður umfram væntingar 21. ágúst 2006 09:49 Kauphöll Íslands.
Hagnaður Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþing hf., sem á og rekur Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráningu Íslands, nam 237,1 milljón króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn 49,4 milljónum króna. Í tilkynningu frá eignarhaldsfélaginu til Kauphallar Íslands kemur fram að rekstrartekjur Kauphallar Íslands hafi numið 313,8 milljónum króna og rekstrargjöld 206,8 milljónum króna. Rekstrarhagnaðurinn fyrir fjármagnsliði var því 107 milljónir króna. Hagnaðurinn nemur 172,9 milljónum en var 21,7 milljónir á fyrri helmingi síðasta árs. Í tilkynningunni segir að hagnaður Kauphallarinnar hafi verið langt umfram áætlanir en í rekstraráætlun var reiknað með tæplega 20 milljóna króna hagnaði á fyrri árshelmingi. Frávik frá áætlun megi fyrst og fremst rekja til þess að velta skráðra verðbréfa var mun meiri en búist hafði verið við auk þess sem hreinar fjármunatekjur voru mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Þá keypti Kauphöllin snemma á árinu í OMX og Oslo Børs fyrir 155 milljónir króna. Rekstrartekjur Verðbréfaskráningar Íslands námu 162 milljónum króna á fyrri helmingi ársins og rekstrargjöld 92 milljónum króna. Rekstrarhagnaður að teknu tilliti til fjármagnsliða og skatta nam hagnaður 64 milljónum króna. Afkoma Verðbréfaskráningar var talsvert betri en áætlanir gerðu ráð fyrir en það skýrist fyrst og fremst af því að rekstrartekjur eru talsvert hærri en gert var ráð fyrir í áætlun. Hins vegar er rekstrarkostnaður í samræmi við áætlun fyrri hluta ársins, að því er fram kemur í tilkynningunni. Þar segir ennfremur að umfang viðskipta á fyrri hluta ársins hafi verið meiri en nokkru sinni áður. Séu vísbendingar um að viðskipti verði áfram lífleg og ljóst er að velta þessa árs verði langt umfram það sem hún hefur áður verið.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira