Tap hjá Smáralind 30. ágúst 2006 16:49 Smáralind. Mynd/Albert
Smáralind ehf., rekstraraðili verslunarmiðstöðvarinnar Smáralind í Kópavogi, tapaði 733 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma fyrir ári tapaði félagið 36 milljónum króna. Tapið skýrist fyrst og fremst af gengistapi af erlendum skuldum félagsins sem nam 652 milljónum króna. Búist er við að breytingar á gengi krónunnar hafi áfram mikil áhrif á afkomu fyrirtækisins. Í tilkynningu frá félaginu til Kauphallar Íslands kemur fram að hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) hafi numið 362 milljónum króna samanborið við 337 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Veltufé frá rekstri á tímabilinu nam 250 milljónum króna en var 191 milljón króna í fyrra. Í lok tímabilsins var eiginfjárhlutfallið tæplega 39 prósent að teknu tilliti til víkjandi láns frá móðurfélaginu. Í tilkynningunni kemur fram að heildartekjur Smáralindar ehf. á tímabilinu hafi numið 654 milljónum króna. Þar af hafi leigutekjur numið 507 milljónum króna, sem er 11 prósenta hækkun frá sama tímabili í fyrra. Rekstrargjöld án afskrifta voru 292 milljónir króna samanborið við 267 milljónir fyrir ári en afskriftir námu 187 milljónum króna. Þá voru fjármagnsliðir neikvæðir um tæpa 1,2 milljarða króna en á sama tímabili í fyrra voru þeir neikvæðir um 209 milljónir króna. Gengistap félagsins á tímabilinu nam 652 mkr. en í lok ágúst hafði það minnkað um 300 mkr. vegna styrkingar krónunnar. Heildareignir Smáralindar ehf. í lok júní námu 10 milljörðum króna en þar af nam bókfært verð verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar rúmum 9,4 milljörðum króna. Eigið fé nam 1 milljarði króna í júnílok og víkjandi lán frá móðurfélaginu námu tæpum 2,9 milljörðum króna. Samtals námu víkjandi lán og eigið fé því rúmum 3,9 milljörðum króna í lok tímabilsins. Heildarvelta verslana og þjónustuaðila í verslunarmiðstöðinni jókst um rúm 13 prósent á fyrstu 6 mánuðum ársins miðað við sama tíma árið áður. Þá jókst gestafjöldinn á fyrri helmingi ársins um 8%. Mikil eftirspurn er eftir húsnæði í Smáralind og hefur leiguverð stöðugt haldið áfram að hækka. Gert er ráð fyrir að tekjur félagsins á síðari hluta ársins verði ívið hærri en á fyrri hluta árs, m.a. vegna fleiri leigusamninga og áhrifa veltutengdra leigusamninga. Horfur séu því á að afkoma af rekstri félagsins fyrir fjármagnsliði (EBITDA) batni enn á síðari hluta ársins en ljóst að breytingar á gengi íslensku krónunnar munu eins og áður hafa mikil áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira