Barr bauð betur í Pliva 11. september 2006 13:03 Höfuðstöðvar Pliva í Zagreb í Króatíu. Mynd/Pliva
Nýtt yfirtökutilboð bandaríska lyfjafyrirtækisins Barr, sem lagt var fram í allt hlutafé í króatíska lyfjafyrirtækið Pliva á föstudag í síðustu viku, hljóðar upp á 820 kúnur á hlut eða jafnvirði 179,4 milljarða íslenskra króna. Þetta er 25 kúnum hærra en nýtt yfirtökutilboð Actavis, sem bauð 795 kúnur á hlut, eða um 176 milljarða krónur. Tilboð Barr var birt á vef fjármálafeftirlits Króatíu, HANFA, í dag. Tilboðið var lagt fram í síðustu viku en ekki var greint frá því hvað í því fælist fyrr en HANFA hefði farið yfir það og gefið samþykki sitt, samkvæmt reglum fjármálaeftirlitsins. Fréttastofan Bloomberg hefur eftir Bernd Maurer, sérfræðingi við Raiffeisen Zentralbank í Vínarborg í Austurríki að búist hefði verið við að Barr hækkaði tilboð sitt. Gengi hlutabréfa í Pliva lækkaði um fjórar kúnur á hlut í kauphöll Króatíu í dag og stendur gengi þeirra nú í 846,1 kúnu á hlut. Actavis á rúm 20 prósent bréfa í Pliva með beinum eða óbeinum hætti. Verði af sameiningu Actavis og Pliva er gert ráð fyrir því að til verði þriðji stærsti framleiðandi á samheitalyfjamarkaði í heimi.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Sjá meira