Unglist fer vel af stað 7. nóvember 2006 17:00 Dansinn dunar á Unglist.
Eins víst og Lóan kemur á vorin þá hefur Unglist Listahátíð ungs fólks, verið árviss viðburður á haustdögum í Reykjavík frá árinu 1992. Hátíðin stendur yfir í rúma viku í hvert sinn með fjölda þátttakenda og njótenda. Unglist hefur ávallt verið starfrækt í tengslum við Hitt Húsið, menningar -og upplýsingarmiðstöð ungs fólks. Dagskráin í ár er fjölbreytt að vanda þar sem ljúfir klassískir tónar hljóma, rokkið tekur völdin, dansinn dunar, kjólacult og kápuklassík, gjörningar, drama og annað gott verður lagt á borð fyrir listætur. Allt í boði ungs fólks sem hefur af elju og metnað gert gnægtarborð listanna sem veglegast. Unglist listahátíð ungs fólks hefur farið vel af stað og mikil ánægja ríkt jafnt hjá þátttakendum sem og gestum með viðburði hátíðarinnar. Dansinn mun duna á morgun þar sem dansarar frá Listaháskóla Íslands, Listdansskóla Íslands, Dansrækt JSB, Dansskóla Birnu Björns, Klassíska Listdansskólanum, Kramhúsinu, Árbæjarþreki og Strákaverkefninu Íd munu leika listir sínar. Fimmtudagurinn verður fjörugur með kvöldi í boði Listaháskólanema í Tjarnabíó og jafnframt tónlist, málun og annað fútt í boði ungra listaspíra í Hinu Húsinu, Leiktu betur á Föstudagskvöldið og síðan rokkað feitt á laugardag. .
Lífið Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira