Tónlist

Monica Groop á jólatónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju

Finnska mezzósópransöngkonan Monica Groop syngur á árlegum jólatónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju 3. og 4. desember nk. Einsöngvarar hafa jafnan sungið með kórnum á þessum tónleikum og að þessu sinni er kórinn svo lánsamur að fá til liðs við sig eina fremstu mezzósópransöngkonu heims um þessar mundir. Monica Groop hefur tvisvar áður sungið með kórnum, í H-moll messu Bachs í ágúst 1999 og í Jólaóratóríu hans um jól 2002. Auk hennar taka þátt í tónleikunum með kórnum Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari og Daði Kolbeinsson óbóleikari. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Að uppástungu söngkonunnar var ákveðið að velja jólalög frá ýmsum löndum Evrópu og syngja þau á mörgum tungumálum. Á efnisskránni eru lög og textar frá átta löndum Evrópu sem birta myndir af persónum og atburðum jólasögunnar, Jesúbarninu, Maríu og vitringunum. Segja má að viðlag sr. Einars í Heydölum við hjarðtónlist Sigvalda Kaldalóns „Með vísnasöng ég vögguna þína hræri" nái að enduróma inntak hinnar alþjóðlegu efnisskrár. Af því stafar kyrrlátri birtu fjárhússins á jólanótt, með hrynjandi hjarðljóðs hirðanna á Betlehemsvöllum og María er nálæg, að vagga jólabarninu. Sungið er á sænsku, rússnesku, frönsku, ensku og þýsku auk íslensku en þýðingar við nokkur laganna hafa verið gerðar sérstaklega fyrir Mótettukór Hallgrímskirkju.

Meðal laganna má nefna Ave María eftir Franz Schubert, Aðventu eftir Otto Olsson, Giv mig ej glans, ej guld, ej prakt eftir Jean Sibelius, Bogoroditse Devo, Maríubæn eftir Sergei Rachmaninoff, Betlehemstjärnan eftir Alice Tegnér, hið kunna enska jólalag Joy to the world eftir Lowell Mason og mótettur Johanns Eccards, María fer um fjallaveg og Mig huldi dimm og döpur nótt með textum Sigurbjarnar Einarssonar biskups.

Fyrri tónleikarnir verða í Hallgrímskirkju sunnudaginn 3. desember kl. 17, hinir síðari mánudaginn 4. desember kl. 20. Miðverð er 2500 kr., 2000 kr. fyrir eldri borgara og námsmenn. Miðasala er hafin í Hallgrímskirkju, sími 510 1000.

Tónleikarnir marka upphaf árlegrar jólatónlistarhátíðar Listvinafélags Hallgrímskirkju sem geymir einnig tónleika Sigurðar Flosasonar og Gunnars Gunnarsson, Sálmar jólanna, 7. desember kl. 20 og tónleika kammerkórsins Schola cantorum og Björns Steinars Sólbergssonar orgelleikara 10. desember kl. 17 með sálmum og sálmforleikjum Bachs.

Hátíðinni lýkur með tónleikum Trompeteria hópsins og Kristins Sigmundssonar á gamlársdag kl. 17.



Um einsöngvarann, Monica Groop mezzósópran

Finnska mezzósópransöngkonan Monica Groop er þekkt fyrir ótrúlega fjölhæfni með efnisskrá sem spannar allt í senn barokktónlist, klassíska óperutónlist og ljóðasöng ásamt samtímatónlist. Hún er eftirsótt hjá mörgum helstu óperuhúsum veraldar og kunnustu hljómsveitum og hefur skipað sér í röð allra fremstu mezzósópransöngkvenna heims.

Monica Groop þreytti frumraun sína sem Charlotte í óperu Massenet, Werther, með finnsku þjóðaróperunni 1987, og hefur verið fastagestur á hinu alþjóðlega tónleikasviði síðan hún kom fyrst fram í London 1991 í rómaðri uppfærslu Bernards Haitink á Niflungahring Wagners. Hún vakti fyrst heimsathygli árið 1994 þegar hún þreytti frumraun sína bæði í Carnegie Hall í New York og Wigmore Hall í Lundúnum og var ákaft fagnað af gagnrýnendum. Velgengni hennar hélt áfram 1995 í hlutverki Mélisande en umdeild uppfærsla Peters Sellars á Pelléas et Mélisande með Fílharmóníuhljómsveitinni í Los Angeles undir stjórn Esa Pekka Salonen hlaut frábærar viðtökur. Síðan þá hefur ferilll hennar verið ævintýri líkastur. Hún hefur sungið með flestum þekktustu hljómsveitum heims og í kunnustu óperuhúsum heims undir stjórn fremstu hljómsveitarstjóra.

Unnendur barokktónlistar þekkja vel til þessarar fjölhæfu söngkonu því hún hefur alltaf kappkostað að flytja slíka tónlist á ferli sínum, oft með allra fremstu túlkendum hennar. Hún hefur verið eftirsótt í helstu mezzósópranhlutverk óperubókmenntanna en jafnframt lagt mikla rækt við ljóðasöng og samtímatónlist. Hún fæst við fjölbreytilegan stíl í söng sínum. „Ég byggi rödd mína á traustum grunni, óratóríunum, barokktónlistinni, en ljóðasöngur og sú samkennd sem finna má í kammermúsík eru mér einnig mikilvæg," segir söngkonan.

Söngur Monicu Groop hefur komið út á meira en 50 hljómdiskum, og má þar t.d. nefna þrjá diska Finlandia útgáfunnar, Flamme d'amour frá þessu ári með frönskum óperuaríum, Arie amorose árið 2001 sem geymir kunnar barokkaríur og disk frá 1998 með alt-aríum úr kantötum Bachs. Um hann var sagt í The San Francisco Chronicle að hljómur raddar Groop væri djásn, ríkulegur og flauelsmjúkur sem skilaði hverri nótu fullkomlega.

Heimasíða umboðsskrifstofu Monicu Groop, síða söngkonunnar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×