Nýtt söngvaskáld á svið 7. febrúar 2007 08:00 kristján þorvaldsson býður upp á þunglyndislegan söngvaskáldaklið með Bellman-ívafi í Stóru trúbadorkeppninni.
Kristján Þorvaldsson, fyrrverandi ritstjóri Mannlífs, tekur þátt í trúbadorkeppni á Sportbarnum. „Ég vona að þetta verði ekki eitthvert „cover-drasl“. Er ekki nóg komið af Idol og X-Factor?“ spyr Kristján Þorvaldsson, fyrrverandi ritstjóri og söngvaskáld. Kristján er meðal þátttakenda í Stóru trúbadorkeppninni sem fram fer á Sportbarnum innan tíðar. Fréttablaðið hefur sagt frá því að keppni þessi sé í vændum en að sögn Friðriks Indriðasonar, eins aðstandenda, hefur þátttaka farið fram úr björtustu vonum. Til stóð að átta listamenn kepptu eftir útsláttarfyrirkomulagi en þegar hafa fjórtán skráð sig til leiks. Lýkur skráningu nú á fimmtudag og er verið að endurskipuleggja vegna góðrar þátttöku. Friðrik segir nokkra þekkta einstaklinga komna á skrá. Þeirra á meðal er Kristján Þorvaldsson, hinn kunni fjölmiðlamaður, sem nýverið lét af störfum sem ritstjóri Mannlífs og nýtur nú lífsins í langþráðu fæðingarorlofi. Aðspurður hvort hann verði með gítar sér til fulltingis svarar hann dularfullur: „Mér skilst að það sé ekki flygill á staðnum. Annars er þetta nú bara tómstundagaman föður í orlofi. Að slá á gígju og syngja með. Smá baðstofustemning.“ Tónlistarhæfileikar Kristjáns hafa ekki farið hátt en hann segist þó hafa troðið upp víða, óumbeðinn sem og pantaður. „Já, en ekki skal ég segja hvort það hafi verið öðrum til skemmtunar en sjálfum mér,“ segir Kristján hinn hógværasti. Málin vandast þegar Kristján er beðinn að skilgreina nánar þá tónlist sem hann semur og flytur. „Hvað kallar hann Hörður þetta aftur? Já, söngvaskáld. Þetta er svona sígildur, þunglyndislegur söngvaskáldakliður à la Hörður Torfa með smá Bellman-ívafi.“
Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Drengurinn sem dó Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Alaska og Birnir sigursæl Menning „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Fleiri fréttir „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira