Undrablanda frá Japan 9. mars 2007 07:15 Blonde Redhead
Japanskar stelpur í indí-heiminum virðast bera með sér óendanlegan persónusjarma og hæfileika. Steinþór Helgi Arnsteinsson er að minnsta kosti agndofa. Japan hefur ætíð verið okkur meira en lítið framandi land. Vestræn hljómsveit sem hefur innanborðs japanska stelpu vekur þannig umsvifalaust athygli, enda þarna komið eitthvað framandi, eitthvað öðruvísi. Undanfarið hafa einmitt japanskar stúlkur í hinum ýmsu hljómsveitum verið algjörir senuþjófar. Raddir þeirra eru yfirleitt ofurtærar og blíðar þannig að auðvelt er að láta dáleiðast af þeim, auk þess sem almennur þokki þeirra er undraverður, svo ekki sé talað um tónlistarlega hæfileika.Sigurvegarar í fyrraAsobi SeksuHljómsveitirnar Cansei og Asobi Seksu sendu báðar frá sér plötur í fyrra og má vel telja þær með betri plötum ársins. CSS er reyndar frá Brasilíu en aðalheilinn á bakvið hana er Lovefoxxx sem heitir réttu nafni Luísa Matsushita og er hálf japönsk. Persónutöfrar hennar eru einfaldlega ótrúlegir eins og sést kannski best á tónleikaupptökum með sveitinni. Þær fregnir bárust einnig fyrir stuttu að sólóskífa væri væntanleg með stúlkunni þar sem engir aðrir en Timbaland og Nigel Godrich verða við stjórntækin.Í Asobi Seksu má finna hina saklausu en beittu Yuki Chikudate en rödd hennar á einstaklega vel við shoegaze-skotið rokk Asobi Seksu. Platan Citrus er algjör demantur sem of lítið fór fyrir á síðasta ári.Sigurvegarar í árOOIOONý plata með hljómsveitinni Blonde Redhead, 23, er væntanleg í næsta mánuði en sveitin sjálf mun einmitt spila hér á landi um svipað leyti. Allir þeir sem hafa orðið vitni að tónleikum sveitarinnar vita hvers konar sjarmatröll Kazu Makino er. Skrækur rómur hennar setur sterkan svip á hljóm sveitarinnar auk þess sem hún virðist gædd afar miklum tónlistarhæfileikum.Fyrir stuttu kom einnig út ný plata með hljómsveitinni Deerhoof að nafni Friend Opportunity. Þar er enn önnur japönsk stúlka, Satomi Matsuzaki, á bak við hljóðneman. Hún er kannski sú nördalegasta af japönsku stúlkunum en söngur hennar og krafturinn á bakvið spilamennskuna er einstakur. Deerhoof er reyndar yfirhöfuð frábær hljómsveit og væri gaman að fá hana á Airwaves í framtíðinni.Sigurvegarar alltafDeerhoofAð lokum verður að minnast á japönsku hávaðarokksveitina OOIOO sem er skipuð fjórum stúlkum. Hugsuðurinn á bak við þá sveit er trommari hinnar goðsagnakenndu Boredoms, Yoshimi P-We (Flaming Lips á að hafa nefnt plötuna Yoshimi Battles the Pink Robots eftir honum), en OOIOO gaf meðal annars út plötuna Taiga í fyrra. OOIOO spilar ákaflega ókvenlegt rokk (í almennri merkingu þeirrar skilgreiningar) og halda þær sig við óhefðbundið, torfmeltanlegt en skapandi og einstaklega svalt hávaðarokk.Japanskar stúlkur eru kannski ekki þær alalgengustu í vestrænni tónlist en þar sem þær skjóta upp kollinum bera þær af. Sömu sögu er reyndar ekki að segja af karlkyninu frá sama landi, hvar eru þeir eiginlega? Man ekki eftir mörgum í svipinn, að minnsta kosti engum sem er eins áberandi og stúlkurnar í fyrrnefndum sveitum.
Mest lesið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira