Ein dóttirin og foreldrar hennar. 9. maí 2007 09:30 Íslensk-bandaríska listakonan Temma Bell í Hafnarborg.
Föstudaginn 10. maí kl. 17 verður opnuð í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, sýning á málverkum listakonunnar Temmu Bell. Temma Bell hefur gert málverkið að sínum miðli og hefur unnið að list sinni í meira en þrjá áratugi. Myndefni hennar er fyrst og fremst landslagið beggja vegna Atlantsála, hið íslenska annars vegar og uppsveitir New York-ríkis hins vegar þar sem hún býr með fjölskyldu sinni. Dæturnar fjórar, dýrin á búgarði fjölskyldunnar og hversdagslífið verður henni gjarnan að yrkisefni. Allt þetta dregur hún sterkum dráttum í málverkum sínum og hefur skapað sér sjálfstæðan og afar áhugaverðan stíl í list sinni. Í hugum Íslendinga hefur nafn listmálarans Temmu Bell sterka tengingu við nafn móður hennar, Louisu Matthíasdóttur, sem er einn merkasti listmálari sem þjóðin hefur átt, og einnig við nafn föður hennar, bandaríska listamannsins Leland Bell. Verk þeirra þriggja voru á sýningunni „Af listmálarafjölskyldu“ sem sett var upp í Hafnarborg sumarið 2000, aðeins nokkrum mánuðum eftir lát Louisu. Á þeirri sýningu voru verk Louisu og Lelands í forgrunni. Á sýningunni sem nú er efnt til í Hafnarborg eru það verk Temmu sem athyglinni er beint að. Systurnar eftir Temmu bell. Líf Temmu hefur frá unga aldri verið mótað af myndlistinni. Hún var virkur þátttakandi í listsköpun foreldranna og þeirri umræðu um listir sem fram fór á æskuheimilinu. Síðar fór hún sjálf í listnám og sýnir reglulega í New York og víðar. Ung kom hún líka til Íslands í fylgd með móður sinni og hefur alla tíð átt sér athvarf hér og dvalið í lengri og skemmri tíma til að mála og rækta samband við vini og fjölskyldu. Líkt og Louisa móðir hennar hefur Temma tengt löndin tvö, Ísland og Bandaríkin, bæði í lífi sínu og list. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl 11 til 17 og fimmtudaga er opið til kl. 21. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 24. júní.
Mest lesið Hjálmar Örn fékk hjartaáfall Lífið „Þetta sat náttúrlega í manni í mörg ár“ Lífið Angie Stone lést í bílslysi Tónlist Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Menning Vilja valdefla konur í brjóstagjöf Lífið Danir senda annan Færeying í Eurovision Lífið Baltasar, Sunneva og Kilja litla njóta lífsins Lífið Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Lífið Unnur Eggerts, Væb og Ragnhildur Steinunn létu sig ekki vanta Lífið Fleiri fréttir „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira