Harry vinsælli en Vilhjálmur 11. maí 2007 05:30 Eru sögð líta út fyrir að vera alvöru par, ólíkt Vilhjálmi og Kate sem voru alltaf eins og systkini.
Nú þegar Kate Middleton er horfin á braut hefur kastljós bresku fjölmiðlannna beinst sífellt meira að hinni ljóshærðu Chelsy sem hefur verið kærasta Harry Prins í rúm þrjú ár. Og skötuhjúin hafa hreinlega slegið í gegn. Harry og Chelsy kynntust fyrst þegar konungsfjölskyldan fór í stutt frí til Simbabve. Harry ku hafa fallið strax fyrir stúlkunni og meðal annars létt á hjarta sínu við nokkra ferðamenn sem sátu í sínum mestu makindum við Okavango-vatnið í Botsvana. „Harry skildi bara ekki hvernig í ósköpunum hann gat verið orðin ástfanginn af þessari stúlku eftir bara fjóra daga,“ sagði einn sjónarvottanna. Stúlkan frá SimbabveNæsta prinsessa? Chelsy er fædd í Afríkuríkinu Simbabve og er af góðum ættum.Stóra spurning er hins vegar hvort Chelsy mætir með Harry í opinbera minningarathöfn um dauða móður hans, Díönu prinsessu, í júlí. Samkvæmt bresku fjölmiðlunum hefur Harry þegar boðið henni á tónleikanna sem hann skipuleggur ásamt bróður sínum. „Ef Harry og Chelsy mæta saman yrði það mjög stórt skref en Harry er ekki viss um að hann vilji kalla allt fjölmiðlafárið yfir Chelsy strax.“ Chelsy er algjörlega á skjön við Kate sem Vilhjálmur sagði upp fyrir skömmu. Hún er alin upp við allsnægtir og hefur aðsetur í þremur löndum en faðir hennar er vellauðugur viðskiptajöfur í Simbabve. Chelsy hefur verið að geta sér góðs orðs fyrir fyrirsætustörf en þykir með eindæmum klár og var góður nemandi í skóla. „Henni er alveg sama að Harry er prins, henni finnst það jafnvel til trafala,“ sagði einn heimildarmaður við breska blaðið Daily Mail. Og þótt Chelsy virki á marga sem litlu snobbuðu stelpuna þá hefur hennar barnslegi þokki og einlægni heillað meðlimi konungsfjölskyldunnar upp úr skónum. Jafnvel Bretar virðast smám saman vera farnir að opna augun fyrir því að Harry og Chelsy gætu verið næstu konunglegu hjónakornin. Þeir eru, þótt ótrúlegt megi virðast, farnir að trúa því að ástin geti þrifist innan Buckingham.Harry the Nazi. Þessi grímubúningur aflaði Harry ekki miklar vinsældir og var hann sakaður um að hafa gert lítið úr fjölskyldu sinni.rightSá brjálaði verður að manni Fjölmiðlar hafa jafnframt verið að taka Harry í sátt á undanförnum misserum. Enda hefur margt breyst og eru þeir ófáir sem vilja þakka Chelsy því að Harry er orðinn að manni. Prinsinn rauðbirkni var áður fyrr ólátabelgurinn í Buckingham, drakk áfengi ótæpilega og reykti gras og gerði allt brjálað þegar hann mætti sem nasisti á grímuball. Þjóðin saup hveljur og blöðin tóku hann af lífi með fyrirsögnum á borð við „Harry the Nazi“. Hann var sagður hafa niðurlægt arfleifð langafa síns og langömmu sinnar Elísabetar sem þjöppuðu þjóðinni saman þegar Hitler lét sprengjum rigna yfir Bretland. En nú er það sem sagt Harry sem á sviðið enda virðist Vilhjálmur prins eingöngu hafa áhuga á fögrum fljóðum og eltir hvert einasta pils á skemmtistöðum höfuðborgarinnar. Harry er að fara í stríðið til Íraks og ætlar sér að verja heiður fjölskyldu sinnar og þjóðar. Og heima bíður hans hin snobbufríða Chelsy. Vilhjálmur prins verður síðan alveg örugglega á næsta bar með enn einni nafnlausu frillunni.
Kóngafólk Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira