Nýtt myndlistarrit 16. maí 2007 09:15 Anna Júlía Friðbjörnsdóttir myndlistarmaður kemur að útgáfu Sjónauka. MYND/gva
Nú er unnið að því að setja á stofn nýtt rit um íslenska myndlist. Myndlistarritið Sjónauki verður blanda af blaði og bók en viðfangsefnið er allt mögulegt sem tengist myndlist. Aðstandendur Sjónauka, myndlistarmennirnir Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Karlotta Blöndal, fengu á dögunum útgáfustyrk frá Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. „Það er mikil vöntun á sérhæfðu riti um myndlist á Íslandi. Svo hefur verið í nokkur ár en í gegnum tíðina hafa margir reynt að koma slíku riti á laggirnar,“ segir Anna Júlía og bætir við að hugmyndin hafi þegar fengið ágætan hljómgrunn enda séu þær stöllur síst þær einu sem séu á þeirri skoðun að meiri myndlistarumfjöllun vanti í íslenska fjölmiðla. „Við stefnum að því að gefa ritið út tvisvar á ári, og að efnið verði bæði á íslensku og ensku,“ útskýrir Anna Júlía. „Markmið Sjónauka er meðal annars að vera vettvangur fyrir gagnrýna umræðu um myndlist því hún er afar lítil hér á landi – það eru greinar á stangli í íslenskum blöðum en margar þeirra eru meira í ætt við fréttatilkynningar.“ Hún tekur fram að einnig skorti talsvert upp á skrásetningu myndlistarinnar þar sem katalógar fylgi fæstum sýningum. „Þetta verður vandað og eigulegt heimildarit. Við stefnum að því að vera með listamann í hverju tölublaði sem vinnur verk sem fylgir ritinu. Viðkomandi hefur frjálsar hendur, verkið getur verið plakat, diskur eða jafnvel ljósmyndasería. Í blaðinu verður síðan að finna greinargóðan texta um listamanninn. Hvert tölublað mun einnig hafa ákveðna yfirskrift eða viðfangsefni.“ Stefnt er að því að fyrsta ritið komi út í september.
Mest lesið Hjálmar Örn fékk hjartaáfall Lífið „Þetta sat náttúrlega í manni í mörg ár“ Lífið Angie Stone lést í bílslysi Tónlist Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Lífið „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Menning Vilja valdefla konur í brjóstagjöf Lífið Danir senda annan Færeying í Eurovision Lífið Baltasar, Sunneva og Kilja litla njóta lífsins Lífið Unnur Eggerts, Væb og Ragnhildur Steinunn létu sig ekki vanta Lífið Fleiri fréttir „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira