Gluggi bókabúðarinnar Máls og Menningar er orðinn ansi myndarlegur enda hafa tveir efnilegir listamenn tekið sig til og málað á þá mynd af Potter. Starfsmenn búðarinnar, þeir Baldur Helgason og Rúnar Logi Ingólfsson, skreyttu gluggana en báðir eru þeir útskrifaðir úr Listaháskóla Íslands.
„Það er svona þegar maður vinnur með hæfileikaríku fólki þá reynir maður að ná því sem þau kunna fram,“ segir Elsa María Ólafsdóttir verslunarstjóri búðarinnar. „Við gerðum þetta fyrst fyrir tveimur árum síðan enda erum við svo heppin að hafa fjölhæfa starfsmenn í vinnu. Þeir tóku um það bil einn dag í að mála og úr varð þetta líka dásamlega listaverk.“
Eflaust munu myndast stórar raðir hjá bókabúðum á föstudaginn eins og fyrri útgáfudaga bókanna og hyggst Mál og Menning ekki láta viðskiptavinum leiðast. „Þetta er langur og strangur dagur fyrir fólkið í röðinni og við ætlum að reyna að skemmta því og gefa þeim í gogginn. Hérna mætir eldgleypir um kvöldið og við höfum líka rætt við Fjölleikahúsið í Mosfellsbæ en einnig verðum við með spurningakeppni sem ætti að mynda góða stemningu. Ætli þýðandinn verði svo ekki fremstur í röðinni?“ segir hún og hlær. Verslunin Nexus hefur opnað nýja heimasíðu helgaða galdradrengnum og nýjustu bókinni en slóðin er www.harrypotter.is.

Íslensk útgáfa af bókinni er væntanleg þann 15. nóvember en það er Helga Haralsdóttir sem sér um þýðinguna eins og áður. „Hún er orðin mjög spennt að fá bókina eins og flestir en við erum að fara af stað með stórkostlega forsölu í gegnum netbúð Hagkaupa á www.hagkaup.is,“ segir Þorgerður Agla Magnúsdóttir hjá Bókaútgáfunni Bjarti. „Forsalan byrjar á miðvikudaginn en þeir sem ná sér í bók þar fá hana senda heim til sín viku fyrr en hún kemur í búðir, eða þann 8. nóvember. Auk þess verður happdrætti í gangi fyrir þá sem kaupa hana í forsölu, óvæntur glaðningur fyrir þá fimmtíu fyrstu og alls kyns Harry Potter húllumhæ.“