

Gott hjá Lúðvík
Í þeim átökum eru annars vegar þau sem vilja styrkja einkaeignaréttinn í sessi og hins vegar hin sem vilja tryggja almannarétt. Tekist var á um nákvæmlega þetta á Alþingi þegar vatnalagafrumvarp þáverandi ríkisstjórnar kom fyrir þingið á síðasta kjörtímabili. Niðurstaðan varð sú að gildistöku þessa umdeilda frumvarps var frestað til 1. nóvember þannig að þinginu gæfist kostur á að taka málið upp að nýju að afloknum kosningum. Í stjórnarmeirihluta fyrri stjórnar voru eflaust til efasemdarmenn um ágæti þessa frumvarps og því ekki mótfallnir að taka málið upp að nýju. Nú hefur iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, lýst því yfir að hann hyggist endurskoða lögin og hef ég fagnað þeirri yfirlýsingu enda er hún í samræmi við fyrri afstöðu hans.
Einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Sigurður Kári Kristjánsson, reyndi að gera lítið úr þessari yfirlýsingu Össurar Skarphéðinssonar. Í útvarpsfréttum 31. ágúst sl. sagði hann: „Ég get ekki betur séð en að iðnaðarráðherrann sé hér einn á ferð og hér sé um að ræða einhverjar eftirhreytur frá því að hann var í stjórnarandstöðu.“ Þessu andmælti formaður þingflokks Samfylkingarinnar í sama fréttatíma á afgerandi hátt auk þess sem fréttastofa RÚV hafði eftir honum ummæli sem tóku af öll tvímæli: „Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir iðnaðarráðherrann síður en svo einan á ferð. Afstaða þingflokks Samfylkingarinnar til nýrra vatnalaga hefði ekkert breyst. Stendur þá þingflokkurinn allur þétt að baki iðnaðarráðherra? Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar: Já, við gerum það…“
Það er mikilvægt að menn gangi ekki að því gruflandi hver afstaða Samfylkingarinnar er og var lofsvert hjá Lúvík Bergvinssyni að kveða skýrt að orði um þetta efni.
Höfundur er þingflokksformaður VInstri grænna.
Skoðun

Fátækt á Íslandi: Áskoranir, viðkvæmir hópar og leiðir til úrbóta
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Verndum vörumerki í tónlist
Eiríkur Sigurðsson skrifar

Hann valdi sér nafnið Leó
Bjarni Karlsson skrifar

Misskilin sjálfsmynd
Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Hvenær er nóg nóg?
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Byggðalína eða Borgarlína
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Úlfar sem forðast sól!
Jóna Guðbjörg Árnadóttir skrifar

Aldrei aftur
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Tala ekki um lokamarkmiðið
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf
Einar G. Harðarson skrifar

Þétting í þágu hverra?
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu
Þórður Snær Júlíusson skrifar

POTS er ekki tískubylgja
Hanna Birna Valdimarsdóttir,Hugrún Vignisdóttir skrifar

Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024
Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar

Hvað er verið að leiðrétta?
Ægir Örn Arnarson skrifar

Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið
Arnar Þór Jónsson skrifar

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu
Clara Ganslandt skrifar

Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig!
Magnús Guðmundsson skrifar

Vetrarvirkjanir
Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar

Yfirgnæfandi meirihluti vill þjóðaratkvæði
Jón Steindór Valdimarsson skrifar

Smábátar eru framtíðin, segir David Attenborough
Kjartan Sveinsson skrifar

Leiðrétting veiðigjalda mun skila sér í bættum innviðum
Arna Lára Jónsdóttir skrifar

Hvað er verið að leiðrétta?
Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar

Efnahagslegur hagvöxtur þýðir ekki endilega samfélagslegur hagvöxtur
Davíð Routley skrifar

Börn innan seilingar
Árni Guðmundsson skrifar

Hallarekstur í Hafnarfirði
Jón Ingi Hákonarson skrifar

Hvers konar Evrópuríki viljum við vera?
Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar

Orðskrípið sem bjarga á veiðigjaldinu
Ólafur Adolfsson skrifar