Ímynd leigumorðingja og leigumorða í kvikmyndum er eilítið brengluð. Á hvíta tjaldinu eru þetta yfirleitt útsmognir náungar með þykkar bankabækur í Sviss, leyniskytturiffil og góð pólitísk sambönd. Samkvæmt rannsóknum eru leigumorðingjar hins vegar oftast ráðnir af afbrýðisömum eiginmönnum og eiginkonum sem vilja losa sig við makann. Samkvæmt vefsíðunni Wikipediu eru tæp tvö prósent allra morða í Ástralíu framkvæmd af leigumorðingjum. Svipaða tölfræði er að finna annars staðar. Hollywood hefur reyndar ekki látið slíkar aftökur framhjá sér fara og er mörgum eflaust í fersku minni sú refskák sem Sean Penn þurfti að leysa í U-Turn þegar Jennifer Lopez og Nick Nolte vildu losa sig við hvort annað. Slíkt myndi eflaust kallast „dæmigert“ leigumorð í raunveruleikanum. Sjakala-einkennið

Þá var Richard Gere á höttunum eftir höfði hans og Sjakalinn í þeirri mynd var umlukinn helstu klisjunum sem sagðar eru einkenna þennan starfstitil; meistari dulargervisins og snjallari en nokkur laganna vörður. Húmor fyrir morðingjumEn Hollywood hefur líka haft húmor fyrir leigumorðingjum og Willis var eftirminnilegur sem Jimmy the Tulip í The Whole Nine Yards. Þar var hann hinn dæmigerði mafíumorðingi; kaldrifjaður og tilfinningalaus en um leið ákaflega svalur og heillandi. Pierce Brosnan var umkomulaus sem leigumorðinginn The Matador í samnefndri mynd sem leitaði ráða hjá fjölskyldumanninum Danny Wright. Þar var leigumorðinginn auðvitað ákaflega klár og snillingur í að láta sig hverfa en með veikar taugar eftir áratuga hark í morðbransanum.
Ólíklegasti leigumorðinginn er þó eflaust hinn þéttvaxni Forest Whitaker í Ghost Dog eftir Jim Jarmusch þó að sú kvikmynd sómi sér vel meðal bestu leigumorðingjamynda kvikmyndasögunnar. Og þótt það yrði erfitt að klína starfsheitinu leigumorðingi á þá Jason Bourne og James Bond mætti eflaust með einhverjum rökum setja þá á stall með þeim. ÓvenjulegurHitman sker sig nokkuð úr hópi annarra leigumorðingjamynda. Hún er fyrir það fyrsta byggð á frægum tölvuleik um leigumorðingja sem er bæði hundeltur af Interpol og rússneska hernum en það er ekki síst uppruni Agent 47 sem gerir hann frábrugðinn öðrum. Sköllótti leigumorðinginn fannst barnungur á kirkjutröppum og var fenginn í hendur leynilegri kirkjureglu.
Agent 47 er því gerður út af andlegum máttarvöldum til að losa jarðarbúa við dópsala og hórmangara. Tölvuleikurinn sjálfur var prýðileg skemmtun; bauð upp á töluverðan hasar og læti og leyfði notandanum að lifa sig rækilega inn í líf leigumorðingjans gegnum PC og Playstation. En kvikmyndinni Hitman hefur hins vegar verið tekið með miklum fyrirvara og hlotið, eins og margar aðrar útfærslur Hollywood á tölvuleikjum, afskaplega misjafna dóma.
freyrgigja@frettabladid.is